Persónuverndarstefna Gæðabaksturs
Við hjá Gæðabakstri ehf. höfum persónuvernd að leiðarljósi í öllum þeim verkefnum sem við sinnum. Því er mikilvægt að þú vitir hvernig við söfnum, notum og birtum upplýsingar. Fyrirtækið skuldbindur sig til að fylgja persónuverndarlögum og persónuverndarstefnan okkar lýsir verklagi í öllu er snertir persónuvernd, meðal annars í gegnum þau kerfi sem við notum, heimasíðu okkar, samfélagsmiðla og tölvupósta. Í þessari stefnu er útskýrt hvernig við meðhöndlum þær persónuupplýsingar sem þú veitir okkur.
Gæðabakstur ehf. er íslenskt fyrirtæki og gögn okkar eru varðveitt hjá þjónustuaðilum bæði innan og utan Evrópska efnahagssvæðisins. Vinsamlegast kynntu þér persónuverndarstefnu okkar fyrir notkun á heimasíðu okkar og samfélagsmiðlum. Stefnan útskýrir hvernig við söfnum og notum persónuupplýsingar í tengslum við þessa þjónustu. Nánari upplýsingar varðandi persónuverndarlögin og skilgreiningar eru í reglugerð (EU) 2016/679 Evrópuþingsins og ráðsins um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga og niðurfellingu tilskipunar 95/46/EB.
Hvernig við gætum safnað upplýsingum:
- Persónuupplýsingar: T.d. nafn, tölvupóstfang, símanúmer og heimilisfang.
- Greiðsluupplýsingar: T.d. kortanúmer ef að þú pantar vörurnar okkar, hvort sem að það er á netinu, í gegn um síma, tölvupóst, í persónu og/eða á annan hátt.
- Atvinnuumsóknir: Atvinnuumsóknir og fylgiskjöl eru að jafnaði varðveitt í 180 daga frá móttöku, en í ákveðnum tilvikum getur varðveislutíminn verið lengri, þó að hámarki tvö ár.
- Upplýsingar í gegnum vafra: Við notum nauðsynlegar vafrakökur (cookies) til þess að tryggja öryggi og virkni ákveðinna hluta vefsíðunnar, meðal annars við innskráningu starfsfólks í stjórnborð. Við notum ekki vafrakökur til markaðssetningar eða tölfræðilegrar greiningar á notkun vefsíðunnar. Til þess að verjast ruslpósti og misnotkun á eyðublöðum vefsíðunnar eru einnig notuð tæknileg auðkenni sem byggja á IP-tölum sendenda. IP-tölurnar sjálfar eru ekki vistaðar í þessum tilgangi.
- Börn og unglingar: Heimasíða okkar og netþjónusta, sem að varin af þessari Persónuverndarstefnu, er ætlað þeim sem eru 18 ára eða eldri. Við munum aldrei safna persónuuplýsingum vísvitandi um einstaklinga undir 18 ára aldri án samþykkis foreldris eða forráðamanns.
Hvernig við gætum notað upplýsingarnar þínar:
- Samskipti: Við þurfum að nota upplýsingar þínar til þess að veita þér þá þjónustu sem að þú biður um og svara fyrirspurnum þínum, þörfum og spurningum. Við getum líka notað upplýsingar þínar til þess að senda þér upplýsingapósta fyrir og eftir pöntun, eða til þess að biðja þig um endurgjöf á þjónustunni frá okkur.
- Persónugera þjónustu: Til þess að aðlaga og bæta upplifun þína hjá okkur getum við notað upplýsingar þínar til þess að bæta fyrirtækið okkar og þjónustu.
- Greining gagna: Við greinum notkun á heimasíðu okkar og netþjónustu. Við gætum einnig notað upplýsingar til þess að tölfræðigreina notkun og þjónustu okkar í rannsóknatilgangi eða öðrum viðskiptatilgangi.
- Eftirfylgni gagna: Við munum nota upplýsingarnar til þess að fylgja eftir lögum, þar og þegar þess er þörf, til þess að vernda okkur og aðra, sem og allar lagalegar beiðnir frá hinu opinbera yfirvaldi og lögreglu. Það gæti verið frá lögreglunni, dómstólum, Hagstofu Íslands og til þess að mæta kröfum um öryggi þjóðarinnar. Þar sem lög leyfa, munum við nota upplýsingar þínar til þess að vernda fyrirtækið okkar, netþjónustu og viðskiptavini okkar. Við munum nota upplýsingar þínar til þess að framfylgja skilyrðum okkar.
- Deiling gagna: Við getum deilt upplýsingum þínum með þriðja aðila, t.d. vegna markaðssetningu; innan fyrirtækisins og með samstarfsfélögum, t.d. til þess að veita þér þjónustu sem að þú hefur beðið um, nema ef lög hindra það; með nýjum eigendum af hluta eða öllu fyrirtækinu, t.d. ef að fyrirtækið eða hluti þess er selt; og þar sem að lög leyfa eða kveða á um.
- Gagnasafn: Við höldum persónuupplýsingum eins lengi og þess er þörf og eins lengi og það er viðeigandi fyrir ofangreinda þætti persónuverndarstefnunnar. Við höldum einnig upplýsingum sem lögin leyfa eða kveða á um.
Verndun persónuupplýsingarna
Gæðabakstur mun taka þau skref sem nauðsynleg eru til þess að vernda persónuuplýsingar þínar sem að við höldum utan um og í því skyni mun Gæðabakstur nota almennar samþykktir og staðlaðar öryggisráðstafanir. Hins vegar er internetið aldrei hundrað prósent öruggt og getum við ekki fullyrt eða lofað að notkun þín á síðunum okkar sé fullkomnlega örugg. Deiling gagna á netinu til okkar er á þinni ábyrgð og hvetjum við þig til þess að sýna varkárni til þess að vernda persónuuplýsingar þínar og deila aldrei viðkvæmum upplýsingum til okkar t.d. kynþætti, trú, stjórnmálaskoðunum, heilsufarsástandi, glæpasögu eða þess háttar.
Við tökum ábyrg skref til þess að takmarka innri aðgang að persónuuplýsingum til starfsmanna sem að þurfa á upplýsingunum að halda til að sinna starfi sínu. Óheimilaður aðgangur að slíkum upplýsingum að hálfu starfsmanna er stranglega bannaður og væri slíkt brot í starfi og yrði tekið á þeim málum samkvæmt vinnureglum Gæðabakstur. Allir starfsmenn Gæðabaksturs eru bundnir þagnarskyldu.
Fleiri spurningar
Ef að þú hefur spurningar varðandi þær persónuupplýsingar sem að við notum, varðandi persónuverndarstefnu Gæðabaksturs, eða ef að þú vilt laga, uppfæra, nálgast eða eyða gögnum sem að við höfum um þig, vinsamlegast hafðu samband við okkur í tölvupóstfanginu gaedabakstur@gaedabakstur.is. Til að tryggja bæði þitt öryggi og okkar, gætum við þurft að fara fram á auðkenni áður en við mætum ósk þinni. Vinsamlegast hafðu í huga að það getur tekið 2-4 vikur að fá svar við beiðninni.

