






Skoðaðu vöruúrvalið
Gæðabakstur hefur ætíð lagt ríka áhersla á gæði framleiðslunnar. Við bakstur á vörum fyrirtækisins er farið eftir ströngum kröfum um hreinlæti og einungis notast við fyrsta flokks hráefni. Þetta kunna viðskiptavinir Gæðabaksturs að meta og sannast það á vinsældum framleiðslunnar allt frá fyrsta degi.
Leiðandi fyrirtæki í brauðgerð á Íslandi
Gæðabakstur er eitt af leiðandi fyrirtækjum í framleiðslu á kornvörum á Íslandi og þjónustar breiðan hóp fyrirtækja og einstaklinga. Fyrirtækið leggur metnað sinn í að bjóða upp á gæðavörur og veita þjónustu sem byggir á faglegum grunni.
Forskot Gæðabaksturs liggur í gæðum, fyrsta flokks hráefnum og sveigjanleika í framleiðsluferlinu. Áreiðanleiki, traust og hreinlæti eru lykilatriði í starfsemi fyrirtækisins, sem tryggja ánægju viðskiptavina og hámarks gæði í hverri vöru.
Metnaður okkar skilar sér í hverja vöru
Hjá Gæðabakstri byggjum við á traustum grunni hefða og nýsköpunar, þar sem starfsfólk okkar gegnir lykilhlutverki. Það er einlægur metnaður bakaranna okkar sem tryggir að hver vara sé unnin úr fyrsta flokks hráefni að natni og fagmennsku. Með sveigjanleika og áreiðanleika að leiðarljósi vinnum við saman að því að mæta ólíkum þörfum viðskiptavina okkar. Ef þú hefur spurningar eða vilt vita meira, hafðu samband við okkur. Við erum ávallt tilbúin að aðstoða!