Hjá Gæðabakstri starfa um 120 manns. Í starfsmannahópnum eru einstaklingar með fjölbreyttan bakgrunn og við erum stolt af öllu okkar fólki sem vinnur ýmist á daginn eða nóttunni við að framleiða góða vöru fyrir viðskiptavini okkar.
Við leggjum áherslu á jafnrétti og virðingu. Það er okkur metnaðarmál að stuðla að vinnuumhverfi þar sem starfsfólki líður vel.
Við auglýsum flest laus störf á Alfreð en einnig er mögulegt að senda inn almenna umsókn á netfangið umsokn@gaedabakstur.is. Hæfir einstaklingar eru hvattir til að sækja um óháð kyni eða uppruna.
Hér má finna tengiliðaupplýsingar hjá stjórnendum og skrifstofustarfsfólki.