Gæðakleinur stórar er stóri bróðir sívinsælu Gæðakleinanna sem fást í helstu verslunum landsins. Gæðakleinurnar eru nýbakaðar á hverjum degi og koma í stykkjatali og er að sjálfsögðu framleitt á gamla góða mátann.
Kleinur eru steikt brauð og það sem helst einkennir kleinur frá öðru steiktu brauði er formið sem er einskonar slaufuform sem myndað er með því að gera rifu í miðjuna á útflöttum, tígullaga eða ferhyrntum deigbút og draga endann í gegnum rifuna. Þá myndast slaufan. Gæða kleinur stórar koma í stykkjatali og eru þær framleiddar fyrir veitingasölur, fyrirtæki, félagssamtök ofl.
Vörunúmer:
200
Þyngd:
85 g