Gæðakleinur litlar

Gæðakleinur litlar eru minni gerðin af sívinsælu Gæðakleinunum sem fást í helstu verslunum landsins. Gæðakleinurnar eru nýbakaðar á hverjum degi og koma í stykkjatali sem við framleiðum á gamla mátann.
Kleinur eru steikt brauð og það sem helst einkennir kleinur frá öðru steiktu brauði er formið sem er einskonar slaufuform sem myndað er með því að gera rifu í miðjuna á útflöttum, tígullaga eða ferhyrntum deigbút og draga endann í gegnum rifuna. Þá myndast slaufan. Gæða kleinurnar litlar koma í stykkjatali og eru þær framleiddar fyrir veitingasölur, fyrirtæki, félagssamtök ofl.

Vörunúmer:

202

Þyngd:

25 g