Gæðakleinur 10 í poka

Gæðakleinur eru nýbakaðar á hverjum degi og koma 10stk í poka. Kleinur eru steikt brauð og það sem helst einkennir kleinur frá öðru steiktu brauði er formið sem er einskonar slaufuform sem myndað er með því að gera rifu í miðjuna á útflöttum, tígullaga eða ferhyrntum deigbút og draga endann í gegnum rifuna. Þá myndast slaufan. Gæða kleinurnar koma 10 stk í poka og eru frábærar með ískaldri mjólk eða rjúkandi heitu kaffi.

Kleinurnar eru vinsælar og fást í öllum helstu verslunum landsins.

Vörunúmer:

203

Þyngd:

250 g