Um Gæðabakstur

Gæðabakstur er leiðandi fyrirtæki í brauðgerð á Íslandi og framleiðir ýmsar gerðir af brauði, rúgbrauði , flatkökum, sætabrauði og kökum fyrir neytendur, hótel, veitingastaði, mötuneyti, stofnanir og fyrirtæki.

Hjá okkur starfa reyndir bakarar sem kappkosta við að uppfylla séróskir viðskiptavina okkar enda eru þarfir þeirra oft mismunandi. Við leggjum alúð í að koma til móts við þarfir hvers og eins með sveigjanleika og áreiðanleika í þjónustu. Þetta kunna viðskiptavinir okkar vel að meta og sannast það á vinsældum framleiðslunnar allt frá fyrsta degi.

Saga Gæðabaksturs

Gæðabakstur var stofnað árið 1993 af Vilhjálmi Þorlákssyni og Jóni Ólafssyni. Framleiðsla hófst á kleinum og amerískum kleinuhringjum í litlu 68 m² húsnæði þar sem Vilhjálmur sá bæði um bakstur og útkeyrslu. Vilhjálmur var eini starfsmaður fyrirtækisins.

Með auknum vinsældum fjölgaði starfsfólki, framleiðslan jókst og árið 1995 var fyrirtækið gert að einkahlutafélagi og fleiri hluthafar gengu til liðs við Gæðabakstur. Vöruúrval Gæðabaksturs jókst svo jafnt og þétt með sameiningu og kaupum á fyrirtækjum eins og Ömmubakstur, Breiðholtsbakarí og Kristjánsbakarí.

Árið 2010 flutti Gæðabakstur í nýtt og tæknivætt húsnæði að Lynghálsi 7 í Reykjavík, þar sem nýjungar og hefð mætast daglega. Fyrirtækið sameinar áratuga gamla handverkshefð og nýsköpun og leggur áherslu á gæði í hverri einustu vöru. Með auknum afköstum í framleiðslu, metnaði og góðu starfsfólki hefur fyrirtækinu tekist að skapa sér sterka stöðu á íslenskum markaði.

Í dag er Gæðabakstur leiðandi í framleiðslu brauð- og bakarísvara fyrir íslensk heimili, stofnanir og fyrirtæki. Vörur Gæðabaksturs hafa um árabil verið áberandi í hillum helstu verslana landsins og eru í dag hluti af daglegu lífi Íslendinga.

Gæðastefna

Gæðabakstur leggur sérstaka áherslu á gæði, hreinlæti og fyrsta flokks hráefni. Þetta kunna viðskiptavinir Gæðabakstur – Ömmubaksturs vel að meta og sannast það á vinsældum framleiðslunnar allt frá fyrsta degi. 

Megináherslur í gæðastefnu Gæðabaksturs eru eftirfarandi:

  • Ofnæmisvaldar: Við berum virðingu fyrir því fólki sem er með ofnæmi fyrir innihaldsefnum sem við meðhöndlum og gætum fyllsta hreinlætis.
  • Umgengni: Við göngum vel um og berum virðingu fyrir eigum fyrirtækisins og eigum annarra. Við förum eftir umgengnisreglum fyrirtækisins, s.s notum hárnet, vinnuföt og berum ekki skartgripi inn í framleiðslu. 
  • Umhverfismál: Við hugum að umhverfinu og leggjum okkur fram við að flokka úrgang, minnka sóun og stuðla að sjálfbærni. 
  • Rekjanleiki: Við vinnum saman við að viðhalda rekjanleika á vörum okkar frá hráefnis til kúnna. Með því tryggjum við öryggi matvæla sem send eru til viðskiptavina okkar. 
  • Berum ábyrgð: Við berum virðingu fyrir vörunni og förum vel með hana. Hjálpumst að við að senda út góða og örugga vöru til kúnnans. Við erum öll í sama liði með sama markmið: Að framleiða góða vöru til afhendingar bæði hvað varðar gæði og heilnæmi
(Útg. 03.11.2025 – Gildistími 03.11.2025 – 03.11.2028)

Jafnréttisstefna

Á grundvelli gildandi jafnréttislaga hefur Gæðabakstur ehf. sett sér svohljóðandi jafnréttisstefnu sem nær til alls starfsfólks fyrirtækisins.

Jafnrétti er órjúfanlegur hluti af jafnlauna- og mannauðsstefnu fyrirtækisins. Fyrirtækið leggur áherslu á að starfsfólk njóti jafnréttis og er hvers kyns mismunun á grundvelli kynferðis, aldurs, uppruna, trúarbragða, starfssviðs, skoðana eða stöðu með öllu óheimil.

Megináherslur í jafnréttismálum eru eftirfarandi:

  • Gæðabakstur greiðir jöfn laun og kjör fyrir jafn verðmæt störf.
  • Allir eiga jafna möguleika til starfa og starfsþróunar hjá Gæðabakstri/Ömmubakstri.
  • Gæðabakstur leggur sig fram við að stuðla að jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
  • Hjá Gæðabakstri er kynbundin og kynferðisleg áreitni er ekki liðin.

Áhersla er lögð á að allt starfsfólk sé upplýst um jafnréttisstefnu fyrirtækisins svo að starfsmannahópurinn í heild vinni í anda hennar.

(Útg. 23.01.2023 – Gildistími 17.12.2022 – 17.12.2025)

Jafnlaunastefna

Jafnlaunastefna Gæðabaksturs nær til alls starfsfólks og er ætlað að tryggja starfsfólki þau réttindi sem 18. grein laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020 tiltekur.

Gæðabakstur greiðir laun eftir umfangi og eðli starfa. Við launsetningu er litið til þeirra krafna og hæfni sem starfið krefst, menntunar og reynslu sem þarf í starfið, ábyrgðar, álags, mannaforráða og samskiptafærni. Forsendur launaákvarðana eru að þær séu studdar rökum og tryggi að sömu laun séu greidd fyrir sambærileg eða jafnverðmæt störf.

Jafnlaunastefna er hluti af jafnréttisáætlun Gæðabaksturs þar sem sérstaklega eru settar fram aðgerðir til að tryggja launajafnrétti.  Markmiðið er ávallt að greiða jöfn laun fyrir jafn verðmæt störf og að allt starfsfólk Gæðabaksturs njóti sömu virðingar og hafi jafna stöðu innan fyrirtækisins. Jafnlaunakerfið tryggir stöðugar umbætur.

Til þess að fylgja eftir jafnlaunastefnu Gæðabaksturs skuldbinda stjórnendur sig til að:

  • Viðhalda jafnlaunakerfi í samræmi við kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST 85 og öðlast vottun í samræmi við lög 56/2017 um jafnlaunavottun.
  • Framkvæma árlega launagreiningu.
  • Bregðast við óútskýrðum launamun umfram 4% vikmörk með stöðugum umbótum og eftirliti.
  • Árlega skal fara fram innri úttekt og rýni stjórnenda.
  • Fylgja lögum, reglum og kjarasamningum sem í gildi eru á hverjum tíma og staðfesta árlega af stjórnendum að þeim sé hlítt.
  • Kynna árlega niðurstöður launagreininga og jafnlaunastefnu fyrir starfsmönnum. Stefnan skal einnig vera aðgengileg á ytri vef fyrirtækisins.
(Útg. 23.01.2023 – Gildistími 17.12.2022 – 17.12.2025)

Framúrskarandi fyrirtæki

Við erum afar stolt af því að Gæðabakstur hefur hlotið viðurkenningu sem framúrskarandi fyrirtæki á Íslandi árlega frá árinu 2012 og er þar með á meðal um 2% fyrirtækja sem standast þær ströngu kröfur. Þessi viðurkenning er staðfesting á vinnusemi og metnaði starfsfólksins okkar, sem tryggir gæði, áreiðanleika og framúrskarandi þjónustu. Við munum halda áfram að hlúa að okkar góða fólki og mæta væntingum viðskiptavina okkar á hverjum degi.

Vörumerkin okkar

Undir merkjum Gæðabaksturs sameinast fjölbreytt úrval vörumerkja, þar á meðal Gæðabakstur, Ömmubakstur, Úrvalsvörur, Breiðholtsbakarí, Stellu rúgbrauð, Ragnarsbotnar, Ekta, Gunnars kleinuhringir og Kristjáns bakarí.